Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Léttari skólastjórasúpa

Léttari skólastjórasúpa Léttari skólastjórasúpa Mig langaði að gera þessa góðu súpu svolítið hollari og sleppi því bæði rjómanum og heinz chili sósunni sem mér finnst einfaldlega ekki góð.

2-3 kjúklingabringur steiktar með salti og pipar
180 g Philadelphia light rjómaostur (lítil dós)
250 ml passata
1 tsk sriracha piparsósa
1 tsk olía
1-2 púrrulaukar sneiddir fínt
1-2 rauðar paprikur
lítill haus blómkál
lítið búnt spergilkál
1 teningur grænmetiskraftur
1 l vatn
2 gulrætur
1 msk karrí,
1 tsk mexican chili
smávegis cayenne pipar

Skera grænmetið smátt. Mýkja fyrst púrrulaukinn í olíu og bæta síðan vatni, passata, rjómaosti, grænmetiskrafti, steiktum kjúkling, grænmeti og kryddunum útí. Láta sjóða í 20 mínútur við vægan hita eða þar til grænmetið er soðið.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com