Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Mjúkar taco skálar

Mjúkar taco skálar Mjúkar taco skálar Þessi er mjög krakkavæn og er hægt að bæta ýmsu við hana eins og piparosti og jalapeno eftir smekk hvers og eins.

250 g nautahakk
lítil dós maís
1/4 smátt sneidd paprika
krukka af salsasósu eða bolognese sósa
1 rifin gulrót
50 g ostur
4 hveiti tortillur skornar í fernt

Troða hverjum tortillakökuhlutanum í holu á muffins formi. Steikja hakkið ásamt grænmeti og sósu. Mýkja grænmetið í sósunni og blanda að lokum maísbaununum saman við. Setja 1-2 kúfaðar matskeiðar af kjötblöndunni í hvert hreiður og dreifa smá osti yfir.
Baka í 5-10 mínútur við 200°c til að bræða ostinn.
Gott að bera fram með sýrðum rjóma og auka salsa.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

3 stjörnur af 5.
2 hafa gefið stjörnur.

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com