Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Súkkulaðikaka og krem

Súkkulaðikaka og krem Súkkulaðikaka og krem Þessi uppskrift er fengin frá Guðnýju vinkonu minni og þetta er hugsanlega besta súkkulaðikaka sem ég hef smakkað.

250 gr hveiti
150 gr sykur
150 gr ljós púðursykur
4- 4 ½ msk Kötlu kakó
1 tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
½ tsk salt
2 egg
2/3 bolli mjólk (180 g)
½ bolli súrmjólk (130 g)
125 gr brætt smjörlíki, kælt aðeins
1 tsk vanilludropar

Hitið ofninn í 175-180 gráður.
Blandið þurrefnunum saman í skál. Hrærið eggjum, nýmjólk, súrmjólk og vanilludropum saman í annarri skál þar til allt hefur blandast vel saman. Blandið innilhaldi beggja skálanna saman og hrærið þar til allt hefur samlagast vel en þó ekki lengur en 2 ½ mínútu. Bakið í 25-30 mínútur.

Kremið:
1/2 bolli flórsykur
100 gr mjúkt smjör / smjörlíki
Hálf tsk vanilla
50 gr brætt og lítið kælt suðusúkkulaði
Sigta flórsykur í skál og bræða súkkulaði yfir vatnsbaði. Smjör hrært saman við súkkulaðið eftir að það bráðnar. Hella varlega saman við flórsykurinn ásamt vanilludropum.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Einungis einn aðili hefur gerið stjörnur.

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com