Uppskriftasafn Erlu Steinu
Súkkulaðikaka án mjólkur og eggja
3 bollar hveiti
6 msk bökunarkakó
2 bollar sykur
1 tsk salt
2 tsk matarsódi 172
2 tsk borðedik eða hvítvínsedik
2 tsk vanilludropar
1,5 dl olía
2 bollar vatn
Blanda þurrefnunum saman og hræra síðan blautu samanvið. Setja í 2 smurð hringlaga form eða skúffukökuform.
Ath: Það má alls ekki sleppa edikinu, því það hjálpar til við lyftingu í kökuna sem fengist annars úr eggjunum.
Hún kemur alveg jafn vel út sem skúffukaka fyrir barnaafmælið eða tveggja hæða úr hringformi:
Þegar bakað er fyrir ofnæmispésa þarf að ganga úr skugga um að kakóið innihaldi ekki ofnæmisvald eins og mjólkurduft og svo verður að nota smjörlíki eða græmetisolíu til að smyrja formin með. Einnig hef ég notað pam sprey til að smyrja með.
Kakan er bökuð við 175 °c í 35 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út ef stungið er á kökuna. Kremið er sétt á kökuna eftir að hún hefur kólnað.
Krem:
100 g smjörlíki
200-300 g flórsykri
1-2 msk kakó
1-3 msk vatn eða möndlumjólk
Þeytt saman, vatnið er notað til að þynna kremið þar til réttri áferð er náð.
Í mjólkurlaust krem er eingöngu notað smjörlíki (ég nota Ljóma) og vatn til að þynna kremið auk vanilludropa, flórsykurs og bökunarkakós.
Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.
5 stjörnur af 5.
3 hafa gefið stjörnur.
Bryndís
2/8/2019 9:04 PM
Mikið lifandi skelfing er gott að geta flett upp á svona síðu þegar gera skal góða köku handa ofnæmispésum. Nú skelli ég í köku. Takk kærlega