Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Poppkorns kjúklingur

Poppkorns kjúklingur Poppkorns kjúklingur Þetta slær í gegn hjá öllum krökkum. Þegar verið er að gera þessa smáu kjúklingabita er um að gera að passa að kryddin séu bæði í eggjablöndunni og í hveitihjúpnum. Berið fram með brúnni kjúklingasósu eða tómatsósu.

400 g kjúklingabringur eða lundir
2 egg
1/2 tsk salt
örlítill svartur pipar
2 tsk paprika
1 tsk laukduft
1/2 tsk hvítlauksduft
2 dl hveiti

Skerið kjúklingin í munnbita stærð.
Stillið upp tveimur skálum. Í fyrri skálinni eru eggin slegin í sundur með gaffli. Í seinni skálina á að setja hveiti ásamt kryddunum. Gott er að setja örlítið af kryddunum út í eggin. Dýfið kjúklingabitunum upp úr eggjablöndunni og síðan í hveitið.
Forhitið air fryer í 180°c. Úðið olíu í botninn á air fryer körfunni og setjið bitana í körfuna. Ekki starfla bitunum ofaná hven annan heldur steikið kjúklinginn í skömmtum ef þarf. Úðið olíu yfir kjúklinginn og steikið í 8-10 mínútur. Stingið í stærsta bitann til að kanna hvort kjarnhiti nái yfir 70°c.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com