Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Pizzadeig

Pizzadeig Pizzadeig Ég hef prófað margar uppskriftir í gegnum tíðina að pizzadeigi og get fullyrt að þessi virkar vel.

Ég geri 2 stórar pizzur úr þessum skammti eða 4 þunnbotna einstaklings pizzur:

1,5 tsk þurrger
240 ml volgt vatn
1,5 msk olía
1 tsk salt
400 g hveiti


Leysa þurrgerið upp í volgu vatni og leyfa því að standa í 10 mínútur áður en hveiti, olíu og salti er bætt saman við.
Hnoða deigið vel og leyfa því að hefast þar til að það hefur tvöfaldast að stærð (30-40 mín).
Skipta deiginu í tvennt, fletja botnana út með kökukefli (eða í höndunum fyrir lengra komna). Setja pizzasósu, ost og önnur álegg eftir smekk. Baka við 200°c þar til kantarnir eru gullinbrúnir.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

5 stjörnur af 5.
3 hafa gefið stjörnur.

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com