Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Pistasíukjúklingur í air fryer

Pistasíukjúklingur í air fryer Pistasíukjúklingur í air fryer 2-3 kjúklingabringur
100 g pistasíukjarnar, saltaðar
1/2 tsk cumin
1 tsk kóríander
1 msk sesamfræ
1 egg

hlynsíróp
örlítið salt og pipar

Byrjið á að mala pistasíukjarnana í matvinnsluvél í grófa mylsnu.
Blandið saman í skál pistasíumylsnunni ásamt sesamfræjum, cumin og kóríander.
Í annarri skál má slá saman eggið.
Forhitið air fryer í 200°c.
Skerið kjúklingabringurnar í tvennt til að fá jafnar steikur.
Dýfið hverri kjúklingasteik í eggjablönduna og því næst í pistasíumylsnuna.
Úðið örlítið af olíu á kjúklinginn og leggið í air fryer körfuna.
Steikið í 8-12 mínútur eða þar til kjarnhitinn í kjötinu nær 70°c.
Blandið saman hlynsírópi og örlitlu af salti og pipar í lítilli skál. Penslið sírópinu á fulleldaðan kjúklinginn áður en borið er fram.
Gott er að bera fram með soðnu kúskúsi og fersku salati.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com