Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Pestókjúklingur

Pestókjúklingur Pestókjúklingur Hann er ekki mikið fyrir augað þessi réttur og er oftast bara kallaður Grænn kjúklingur heima hjá mér en hann er bragðgóður og svo ótrúlega einfaldur.

4 kjúklingabringur
4 msk hlynsíróp
1 krukka grænt pestó (190 g)

Blanda saman pestói og sírópi í botninn á ofnfati.
Skera kjúklingabringur í nokkra bita. Velta bitunum aðeins uppúr pestósírópinu.
Baka við 200°c í 30 mínútur. Bera fram með basmati hrísgrjónum.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

3 stjörnur af 5.
2 hafa gefið stjörnur.

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Athugasemdir (1) +

Prentað út af http://www.uppskrift.com