Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Konunglegt kjúklingasalat

Konunglegt kjúklingasalat Konunglegt kjúklingasalat Þetta salat var upphaflega gert fyrir krýningu Elísabetar drottningar 1953 en hefur verið vinsælt lengi sem fylling í samlokur.

1 stk elduð kjúklingabringa
80 g majones
40 g sýrður rjómi
2 tsk milt karríduft
30 g mango chutney
1 kúfuð msk ljósar rúsínur (sultanas)
1/2 msk saxaðar apríkósur
2 tsk möndluflögur
lítill vorlaukur, fínt sneiddur

Byrjið á að blanda saman majónesi, sýrðum rjóma, karrí dufti og mangó chutney.
Skerið kjúklingabringuna í litla bita og hrærið saman við sósuna ásamt vorlauk, apríkósum, rúsínum og möndluflögum.
Salatið geymist í kæli í 2-3 daga.
Frábært í samlokur ásamt sneiddu jöklasalati og þunnum gúrkusneiðum.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com