Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Kökuskrímslið

Kökuskrímslið Kökuskrímslið Þessi vekur alltaf lukku. Það er svolítið föndur að útbúa rjómann þar sem ekki fæst blátt kökukrem í sprautuformi hér en það er vel þess virði og jafnvel lystugra að toppa drykkinn frekar með rjóma en smjörkremi eins og gert er í upphaflegu uppskriftinni.

Allt sett í blender:
30 ml Cake vodka
30 ml vanilla vodka
30 ml hvítt súkkulaði líkjör
1 líter vanilluís (fylla upp í hálfan blender)
5 oreo kexkökur

Blanda og hella í kokteilglös (hurricane glös eða poco grande sem er minna kokteilglas)

Toppa með stífðum rjóma (pela af rjóma með msk af flórsykri) með bláum matarlit (duft eða gel litur , alls ekki fljótandi því þá verður rjóminn ekki stífur)
.
Sprauta í glasið með rjómasprautu eða sprautupoka með stjörnustút og skreyta með 1 oreo köku og 2 djúpum eða mentos sem búið er að teikna á augasteina með svörtum kökupenna.

Þessi kokteill er fenginn af síðunni Tipsy bartender en videoið þeirra má finna hér https://www.youtube.com/watch?v=7a0DVO88l_k



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com