Uppskriftasafn Erlu Steinu
Kókoskúlur
1,5 dl kókosmjöl
1,5 dl flórsykur
1 tsk vanillusykur
2 msk kakó
Öllu hrært vel saman og síðan er bætt við
1 msk kalt vatn
100 g smjör
Blanda öllu vel saman. Hnoða og móta litlar kúlur. Velta upp úr kókosmjöli. Geyma í kæli.
Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.
3 stjörnur af 5.
4 hafa gefið stjörnur.