Uppskriftasafn Erlu Steinu
XX Kleinur í Airfryer
Áferðin verður ekki eins og ef þær væru djúpsteiktar en þær eru samt góðar og ábyggilega mun hollari.
Úr þessari uppskrift fékk ég 30 kleinur og það tók um 30 mínútur að steikja allt saman.
400-450 g hveiti
50 g smjör
110 g sykur
3 tsk lyftiduft
3/4 tsk matarsódi
1 tsk kardimommudropar
1 egg
250 g hrein jógúrt
Byrjið á að vinna saman kalt smjör og helminginn af hveitinu. Þegar smjörið og hveitið er orðið vel blandað og án klumpa má bæta við sykri, lyftidufti, matarsóda og kardimommudropum.
Setjið nánast allt hveitið saman við en geymið síðustu 50 grömmin og bætið við deigið eftir þörfum.
Setjið jógúrt og egg saman við og bætið við hveiti þar til hægt er að hnoða án þess að deigið festist við fingurna.
Látið deigið bíða í klukkustund í kæli áður en unnið er með það.
Fletjið deigið út með kökukefli í um 0,5 cm þykkt. Skerið út tígla og skerið litla rauf í miðju hvers tíguls. Dragið annan enda tígulsins í gegnum raufina til að snúa upp á kleinuna.
Forhitið Air fryer pottinn í 190°c.
Best er að setja kleinurnar á disk og pensla með bræddri palmín feiti yfir báðar hliðarnar áður en þær eru settar í air fryer.
Bakið í 2 mínútur og snúið þeim síðan við og bakið áfram í 2-3 mínútur eða þar til þær eru fallega brúnar.
Ég næ að steikja 5 kleinur í einu.
Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.
Enginn hefur gerið stjörnur enn..