Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Kanilsnúningar

Kanilsnúningar Kanilsnúningar Einföld uppskrift og heimilið ilmar af yndælum bökuðum kanilsykri. Frábærir bornir fram volgir með stóru glasi af mjólk.

1 pakki smjördeig
50 g brætt smjör
2 tsk kanill
4 msk sykur
2 msk púðursykur

50 g flórsykur og vatn fyrir glassúr

Fletjið deigið út með kökukefli í 25 x 30 cm ferning.
Penslið deigið með þunnu lagi af bræddu smjöri.
Blandið saman sykri og kanil. Stráið kanilsykri yfir.
Brjótið saman deigið svo það verði tvöfalt. Skerið deigið í 1,5 cm renninga. Snúið upp á renningana og leggið á bökunarpappír í air fryer.
Bakið við 160°c í 8-12 mínútur eða þar til smjördeigið hefur tekið gylltan lit.
Blandið þykkan glassúr úr flórsykri og örliltu vatni. Gott er að setja vatnið út í flórsykurinn í smáum skömmtum til að ná fram hæfilegri þykkt.
Dreifið glassúr yfir stangirnar og berið fram volgar.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Athugasemdir (1) +

Prentað út af http://www.uppskrift.com