Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Honeycomb karamella

Honeycomb karamella Honeycomb karamella Þessi kallast mörgum nöfnum en algengustu nöfnin eru Honeycomb, Cinder toffee eða Hokey pokey.

80 g sykur
50 g bökunarsíróp
1 tsk matarsódi

Hita saman sykur og síróp í potti.
Þegar sykurblandan nær 116 °c (og hægt er að myndar kúlu úr karamelludropa sem látinn er drjúpa í ískalt vatn) er potturinn tekinn af hitanum og er matarsódanum hrært rösklega samanvið.
Blöndunni er síðan strax hellt á bökunarpappír og látið kólna.
Setjið pottinn strax undir heitt vatn til að auðveldara verði að þrífa hann. Þegar blandan hefur kólnað er hægt að brjóta hana með buffhamri eða kökukefli. Frábært yfir ís.






Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com