Uppskriftasafn Erlu Steinu
Hlynsírópsgljáðar hnetur- slow cooker
250 g ristaðar kasjú hnetur
2 msk smjör
2 msk hlynsíróp
1/2 tsk vanilludropar
Láta smjörið bráðna fyrst í pottinum (tekur nokkrar mínútur) og blanda sírópinu við ásamt vanilludropunum. Hræra hnetunum út í blönduna og loka pottinum. Elda á low í klukkustund og hræra upp í hnetunum. Elda í klukkustund í viðbót. Snilld út á salat eða ís. Geymist best í loftþéttu boxi.
Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.
Einungis einn aðili hefur gerið stjörnur.