Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Heimagerð crunch wrap

Heimagerð crunch wrap Heimagerð crunch wrap Það er gaman að prófa sig áfram með hráefnin heima við og fá jafnvel betri útgáfu af uppáhalds skyndibitanum. Þessi kemur skemmtilega á óvart en osturinn sem hefur fengist að undanförnu í mörgum matvöruverslunum setur tóninn með chili sem bragð er að.

400 g steikt nautahakk með taco kryddi
6 sneiðar mexicana ostur
100-150 g salsa sósa
fínt skorið iceberg kál
1 tómatur smátt skorinn
6 msk sýrður rjómi
1 dl rifinn ostur
nacho cheese tortilla flögur
6 stórar mjúkar hveiti tortilla kökur

Leggið 1 sneið af mexicana osti í miðjuna á totilla köku. Setjið 2-3 msk af steikta hakknu ofaná ostinn, þvínæst 1 msk af salsa sósu. Setjið örlítið af káli og tómat og 1 msk af sýrðum rjóma þar yfir. Setjið 1/2-1 matskeið af rifnum osti yfir sýrða rjómann og raðið nokkrum nachos flögum þar yfir.
Þrýstið létt á fllinguna til að flögurnar molni aðeins (þetta auðveldar fyrir við vandasama verkið að loka tortilla kökunni). Brjótið nú kantana á tortilla kökunni inn að miðju. Þetta er oftast gert í 5-6 handtökum. Ef ekki er hægt að loka alveg fyrir fyllinguna má leggja kökuna á hvolf á bökunarpappír.
Hitið air fryer í 200°c og bakið kökurnar með sauminn niður í 4-5 mínútur. Snúið kökunum við eftir 3 mínútur.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com