Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Glútenlaust focaccia brauð

Glútenlaust focaccia brauð Glútenlaust focaccia brauð 1 tsk þurrger
1 tsk sykur
180 ml volgt vatn
240 g GF hveiti
1 tsk xanthan gum
1 tsk salt
3 msk olía
3 msk aquafaba (vatn úr kjúklingabaunum í dós)
¼ tsk matarsódi
2 tsk edik
Ólífur, salt og olía á toppinn

Byrja á að blanda saman þurrgeri, vatni og sykri og leyfa því að standa og freyða í nokkrar mínútur.
Á meðan er hægt að taka saman hin hráefnin. Blanda saman hveiti, xanthan gum og salti og bæta út í olíu og aquafaba. Þeyta saman með rafmagnsþeytara og blanda síðan gerblöndunni út í.
Í annarri skál á að blanda saman ediki og matarsóda og blanda því varlega saman við deigið.
Setja deigið í smurt form og leyfið því að lyfta sér áður en það er bakað. Setjið smávegis olíu og salt ásamt ólífum yfir deigið og bakið í 30 mínútur eða þar til brauðið hefur tekið fallegan lit.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com