Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Brúnaðar kartöflur

Brúnaðar kartöflur Brúnaðar kartöflur Það eru margar aðferðir við að brúna kartöflur og skiptar skoðanir á hvort eigi að setja saman við rjóma eða vatn eða sleppa því alveg en hér er sú aðferð sem hefur reynst okkur best:
1 kg forðsoðnar kartöflur (eða soðnar flysjaðar kartöflur)
1 dl sykur
1 msk smjör eða smjörlíki

Fyrst þarf að setja kartöflurnar í heitt vatn svo að kartöflurnar nái að verða heitar í gegn (einfaldast að hella yfir þær úr hraðsuðukatlinum á meðan annað hráfni er tekið til).
Setjið 1 dl sykur í botninn á pönnu og hitið þar til sykurinn er bráðinn. Bætið þá smjörinu út í sykurinn og hrærið vel saman. Slökkvið nú undir pönnunni. Hellið vatninu af kartöflunum og látið þær standa í sigtinu í 1 mínútu til að vatnið nái að drjúpa vel af og hellið síðan heitum kartöflunum út í karamelluna á pönnunni. Veltið kartöflunum um í karamellunni til að hjúpa þær.

Setjið brúnaðar kartöflur í skál og leggið pönnuna í bleyti til að auðvelda frágang.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com