Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Boeuf Bourguignon

Boeuf Bourguignon Boeuf Bourguignon Þessi uppskrift er byggð á uppskriftinni hennar Juliu Child en ég breytti nokkrum atriðum til að auðvelda eldamennskuna og minnka svolítið fituinnihaldið í réttinum sem mér fannst óþarflega hátt. Það er einnig hægt að elda réttinn í ofnpotti með loki ef fólk á ekki slowcooker en þá er eldað við lágan hita (150 °c í 2-3 klst) en eldunarleiðbeiningar ættu annars að vera svipaðar.

6-8 sneiðar reykt bacon
400 g nautagúllas
1 msk hveiti
olía til steikingar
1-2 gulrætur
1 lauf hvítlaukur pressað
350 ml rauðvín
350 ml nautasoð
1/2 tsk timjan
1 msk tómatpúrra
1 lárviðarlauf
1 askja sveppir
15-30 perlulaukar eða skalottlaukar (ég nota heilt net)


Byrjað er á því að steikja bacon og taka það síðan til hliðar. Gott er að skera baconið í strimla þegar það er búið að kólna. Pannan er ekki skoluð á milli þar sem skófirnar eru notaðar til að byggja upp sósuna seinna í uppskriftinni.

Gúllasinu er velt upp úr hveiti og síðan er það snöggsteikt á pönnuni. Ath einungis er verið að loka kjötinu svo það á að steikjast við háan hita en ekki gegnumsteikja það sett í slow cooker pott ásamt bacon strimlum.

Þá er rauðvíninu hellt á pönnuna og skófirnar losaðar af pönnuni. Nautasoði er einnig hellt á pönnuna og timjan bætt við. Soðsósan er látin krauma í nokkrar mínútur og síðan hellt yfir kjötið í pottinum.

Skera gulræturnar í sneiðar og mýkja þær í sjóðandi vatni í nokkrar mínútur og setja í pottinn með kjötinu.

Tómatpúrra og lárviðarlauf eru sett í pottinn og síðan er stilt á medium í nokkrar klukkustundir.

Sveppirnir eru skornir gróft og steiktir uppúr smá olíu og þeir eru síðan látnir bíða þar til hálftími er eftir af eldunartímanum.

Skalottlaukarnir eru látnir í sjóðandi vatn í 30 sekúndur, endinn er skorinn af og þá er auðvelt að ná hýðinu utanaf lauknum. Laukarnir eru settir á pönnu með smá olíu og látnir mýkjast aðeins. Laukarnir eru settir út í pottinn á sama tíma og sveppirnir.

Tilvalið er að bera þennan rétt fram með soðnum kartöflum.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Einungis einn aðili hefur gerið stjörnur.

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com