Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

BBQ kjúllaborgari slowcooker

BBQ kjúllaborgari slowcooker BBQ kjúllaborgari slowcooker Þessi er svo vandræðalega einfaldur að hann telst varla sem uppskrift. Eina sem þarf til er slowcooker, kjúllabringur og bbq sósa. Hægt er að skutla þessu í pottinn og leyfa réttinum að eldast á meðan farið er til vinnu en þá þarf að passa að stilla pottinn á low.

3-4 kjúklingabringur
1/2 flaska uppáhalds BBQ sósan (Sweet baby Ray)

Hamborgarabrauð
Hrásalat

Hluti sósunnar er settur í botninn á slowcooker pottinum, bringurnar lagðar ofaní og restinni af sósunni sett yfir. Stilla á Low og leyfa bringunum að eldast í 6-8 klst eða á high í 4-6 klst.

Veiða bringurnar upp úr pottinum, tæta í sundur með gaffli og setja aftur í BBQ sósuna í slowcooker pottinum. Leyfa kjúklingnum að vera í sósunni í 15-30 mín áður en borið er fram.

Þetta er borið fram á hamborgarabrauði eða tortilla vefjum með hrásalati og öðru grænmeti sem fólki finnst passa með borgaranum.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com