Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Awesome sauce (BBQ sósa)

Awesome sauce (BBQ sósa) Awesome sauce (BBQ sósa) BBQ sósa er ekki bara BBQ sósa. Sósurnar í Kansas eru frekar sætar en í Texas eru þær sterkari. Þessi BBQ sósa er ættuð frá Suður Karólínu og er svolítið sæt og með þónokkrum sinnepskeim.

1 bolli passata
1/2 bolli dökkt agave síróp
1/4 bolli eplaedik
1/4 bolli spicy brown mustard
2 msk worchestershiresósa
1 msk hvítlaukssalt
1 msk paprika eða 1 msk smoked paprika
1/2 msk möluð sinnepsfræ
1/2 msk laukduft
1 lárviðarlauf
1 msk franks red hot sósa

Öllu blandað saman í potti og látið sjóða í 10 mínútur. Þetta geymist i kæli í viku.

Ég prófaði að baka grísarif í ofninum með þessari sósu og það kom ótrúlega vel út. Rifin voru látin marinerast yfir nótt með sósunni og vafin í álpappír og síðan bökuð við lágan hita (150°c) í ofni í 2,5 klst. Síðan skelltum við þeim á grillið örsnöggt og pensluðum með meiri BBQ sósu til að fá klístruð og girnileg rif.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com