Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Appelsínu marmelaði

Appelsínu marmelaði Appelsínu marmelaði Ég elska appelsínumarmelaði án þess að börkurinn sé að flækjast fyrir. Þessi uppskrift er einföld og er óþarfi að nota sultuhleypi.

1 kg appelsínur, súrar
u.þ.b. 400 g sykur
400 ml vatn
1 sítróna

Skolið ávextina og skerið þá í fjóra hluta.
Setjið ávextina í pott ásamt vatni. Setjið lokið á pottinn og sjóðið í um 2 klst þar til ávextirnir eru mauksoðnir.
Hrærið vel í pottinum með viðar sleif. Hellið blöndunni í gegnum sigti og mælið magn vökvans í pott. Setjið sama magn af sykri í pottinn og sjóðið við vægan hita þar til sykurinn er upp leystur. Hækkið þá hitann og sjóðið í 12 mínútur, hrærið vel í á meðan.
Takið marmelaðið af hitanum um leið og blandan nær 105 °c hita.
Setjið á sótthreinsaðar krukkur.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Athugasemdir (2) +

Prentað út af http://www.uppskrift.com