Mál og Vog

1 bolli = 2, 4 dl
100 g smjör = 0,9 dl olía
1 pund = 453 g
1 enskur quart = 11 dl
1 amerískur quart = 9,5 dl
1 únsa = 30 g
175 °c = 350 °f
200 °c = 400°f
1 stick butter= 113 g smjör
1x agave= 2x sykur
5 g ger fyrir hver 250 g hveiti

Uppskriftasafn Erlu Steinu

Ananas frómas

Ananas frómas Ananas frómas Þessi uppskrift er fengin frá henni Njálu sem gerir besta frómas sem ég hef smakkað:

10 blöð matarlím, lögð í bleyti

500 ml rjómi, þeyttur

3 egg
120 g sykur
Þeytt vel saman

1/2 dós ananas, bara safinn auk safans úr hálfri sítrónu.

Bræða matarlímið í vatnsbaði og kæla hægt með ananassafanum (1 tsk í einu).
Matarlímsblöndunni er bætt varlega saman við eggjahræruna og að lokum er þeytta rjómanum hrært varlega saman við blönduna með sleikju.
Kæla í a.m.k. 2 klst.



Hefur þú prófað uppskriftina? Endilega segðu mér þína skoðun.

Enginn hefur gerið stjörnur enn..

Gefa stjörnur

  • 1

  • 2

  • 3

  • 4

  • 5




Skrá athugasemd




Prentað út af http://www.uppskrift.com